Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Bæjarstjórn Akureyrar mótmælir fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú

Eftir Ingólfur Stefánsson·
loftbru
kaffid.is

Rætt var um nýtt fyrirkomulag Loftbrúar á fundi hjá Bæjarstjórn Akureyrar í gær, 3. nóvember. Bæjarstjórn mótmælir fyrirhuguðum breytingum og lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem þær kunna að hafa fyrir íbúa landsbyggðarinnar í bókun frá fundinum sem má sjá í heild hér að neðan:

Bæjarstjórn Akureyrar mótmælir fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem þær kunna að hafa fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Loftbrú er mikilvægt byggðarjöfnunartæki sem tryggir íbúum utan höfuðborgarsvæðisins betra aðgengi að nauðsynlegri þjónustu, atvinnu, menningu, námi og fjölskyldutengslum. Breyting frá hlutfallslegum 40% afslætti yfir í fasta krónutölu felur í sér skerðingu á stuðningi, sérstaklega þegar flugfargjöld eru há og bóka þarf flug með skömmum fyrirvara. Með því er aukinn kostnaður færður yfir á íbúa landsbyggðarinnar og jafnræði til búsetu skert. Bæjarstjórn Akureyrar skorar á stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaðar breytingar, tryggja raunverulegt samráð við sveitarfélög og íbúa landsbyggðarinnar og standa vörð um Loftbrú sem mikilvægt tæki til byggðarjöfnunar. Það á ekki að vera dýrara að búa á landsbyggðinni vegna þess að nauðsynleg þjónusta er staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Sindri S. Kristjánsson S-lista og Hanna Dóra Markúsdóttir S-lista óska auk þess bókað: Loftbrúin er eitt allra mikilvægasta tækið til að tryggja byggðajöfnuð í landinu og jafna aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að sérhæfðri þjónustu, stjórnsýslu og menningu á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir okkur jafnaðarfólk er það grundvallaratriði að öllum landsmönnum sé tryggt jafnt og sanngjarnt aðgengi að þessum gæðum. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar á Akureyri lýsa yfir talsverðum áhyggjum af áformum innviðaráðherra um að hverfa frá 40% hlutfallslegum afslætti Loftbrúarinnar yfir í fasta krónutölu. Fastur krónutöluafsláttur rýrnar hratt í verðbólgu og verndar notendur ekki gegn mikilli verðlagningu á fargjöldum þegar ferðast þarf með skömmum fyrirvara, til dæmis vegna óvæntra atburða. Þar sem nú þegar hefur verið tilkynnt um aukin framlög til verkefnisins sem mæta fyrri fjárhagsvanda, er ekki lengur þörf á þessari kerfisbreytingu að okkar mati. Við hvetjum innviðaráðherra eindregið til að falla frá hugmyndum um fasta krónutölu og viðhalda núverandi fyrirkomulagi óbreyttu, nema fram komi tillögur sem raunverulega bæta og styrkja kerfið fyrir notendur þess jafnt sem ríkissjóð.

Tengdar greinar

Uppfært: 10. nóvember 2026