MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Bæjarstjóri undirritar samning við Svartar bækur

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
svartar-baekur-1800×1044
Ljósmynd: Akureyri.is· kaffid.is

Í dag var undirritaður samningur milli Akureyrarbæjar og Svartra bóka um leigu á Laxdalshúsi. Samninginn undirrituðu Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Stuart David Gates fyrir hönd Svartrar bóka. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar þar sem jafnframt segir að í húsinu verði rekin fornbókaverslun með áherslu á endurnýtingu og sjálfbærni. Auk sölu á notuðum bókum verður boðið upp á minjagripi og listmuni eftir listamenn á svæðinu, sem og kaffi og léttar veitingar.

Áætlaður opnunartími verður eftirfarandi:

  • Mánudagar–föstudagar: kl. 12–18
  • Laugardagar: kl. 12–17
  • Sunnudagar: lokað, nema á háannatíma í júlí

Gert ráð fyrir reglulegri menningardagskrá með það að markmiði að efla Laxdalshús sem vettvang bókmennta og menningar. Meðal þess sem stendur til er:

  • Mánaðarleg ljóða- og upplestrarkvöld
  • Samstarf við listamenn og útgefendur
  • Viðburðir í tengslum við þjóðhátíðardaginn 17. júní, Akureyrarvöku og fleiri tilefni
  • Tenging við norrænt bókmenntasamstarf

Markmiðið er að skapa stöðugt og innihaldsríkt menningarstarf sem hæfir húsinu, með hóflegum fjölda gesta og vandaðri dagskrá að sögn Akureyrarbæjar.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026