Bæjarráð Akureyrar ræddi um þjónustuskerðingu á Akureyrarflugvelli á bæjarráðsfundi síðastliðinn fimmtudag og lýst var yfir miklum áhyggjum í bókun bæjarráðs.
„Bæjarráð lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri þjónustuskerðingu sem orðið hefur á Akureyrarflugvelli í kjölfar þess að LOC/ASR 01 aðflug var lagt af. Sú ákvörðun hefur neikvæð áhrif á rekstraröryggi Norlandair, sem hefur aðsetur á Akureyri, auk innanlandsflugs Icelandair,“ segir í bókun ráðsins.
„Öruggt og áreiðanlegt innanlandsflug er mikilvæg forsenda virkrar landsbyggðarstefnu og skiptir miklu fyrir atvinnulíf, búsetu og heilbrigðisþjónustu. Að mati bæjarráðs er það óskiljanlegt að slíkt ástand sé uppi á sama tíma og unnið er markvisst að uppbyggingu flugvallarins. Bæjarráð hvetur stjórnvöld til að grípa til allra þeirra aðgerða sem í þeirra valdi standa til að draga úr áhrifum þessarar ákvörðunar.“










