MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Axel Flóvent kominn heim og spilar í Samkomuhúsinu á laugardaginn

Eftir María Hjelm·
1FBA53C813291F17399177F1A4A2CE3B06E24777E301549B1884B9C863EE1DFC_713x0
Mynd: Ívar Eyþórsson· kaffid.is

Axel Flóvent er fæddur og uppalinn á Húsavík. Fyrsta EP skífan hans, Forest Fires, kom út á Íslandi árið 2015. Stuttskífan fékk mikla athygli frá umheiminum og titillaginu hefur verið streymt yfir 75 milljónum sinnum á Spotify.

Axel hefur hitað upp fyrir ýmsar hljómsveitir í gegnum tíðina, þar á meðal The Paper Kites, Radical Face, Mumford & Sons, Junius Meyvant og Ásgeir Trausta.

Á morgun, laugardaginn 18. júní klukkan 20:00, heldur Axel tónleika í Samkomuhúsinu á Húsavík þar sem hann mun spila blöndu af nýju og gömlu efni.

„Ég er búinn að búa á Húsavík í eitt og hálft ár, eftir að hafa búið í áratug í Reykjavík og erlendis. Það er æðislegt að kynnast bænum upp á nýtt sem fullorðinn einstaklingur og sjá hann með nýjum augum. Bæði margt búið breytast og margt alveg eins og það var,“ segir Axel.

„Ég hef spilað hér og þar á Húsavík síðan ég kom heim, en þetta eru fyrstu tónleikarnir mínir sem ég sel inn á, á hefðbundinn máta,“ bætir hann við um viðburðinn.

Um þessar mundir er Axel að undirbúa tónleikaferðalag um Evrópu og Bretland í október og nóvember.

„Ég er að byrja prufa mig áfram með pælingar sem að ég ætla vera með úti og það er alltaf best að byrja hrár heima hjá sér, held ég nú. Þannig að ég hlakka mjög til að spila í Samkomuhúsinu á laugardaginn.“

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026