Ólafsfjörður.

Aurskriða hefur áhrif á neysluvatn í Fjallabyggð

Aurskriða féll í Brimnesdal rétt við Ólafsfjörð í morgun og hefur það í för með sér að litur hefur komið í kalt neysluvatn. Þetta kemur fram á vef Fjallabyggðar. Strax í morgun var hafist handa við að hreinsa vatnið og er unnið hratt að því að koma vatninu í eðlilegt horf. Gert er ráð fyrir að vatnið verði orðið hreint síðar í dag.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!