Sjúkrahúsið á Akureyri hefur formlega hafið undirbúning á því að nýrnalæknar frá Landspítalanum muni koma á SAk á sex vikna fresti í tvo daga í senn. Í tilkynningu á vef SAk segir að talsverður fjöldi fólks sem er búsettur á Norðurlandi hafi hingað til þurft að fara suður yfir heiðar til þess að hitta nýrnalækni.
„Mánaðarlega má gera ráð fyrir því að 20-25 einstaklingar hafi þurft að ferðast suður í þeim erindagjörðum,“ segir á vef SAk.
Guðjón Kristjánsson, forstöðulæknir lyflækningadeildar SAk, segir að það sé mikið fagnaðarefni að stefnt sé að því að fá nýrnalækni reglulega til Akureyrar.
„Við viljum auðvitað eftir fremsta megni geta boðið fólki af okkar starfssvæði upp á þjónustu hér, fremur en að það þurfi að leggja á sig ferðalag suður“ segir Guðjón.
„Það er að sjálfsögðu gleðiefni og vert að taka fram að það er algjört lykilatriði að á SAk eru starfandi mjög öflugir hjúkrunarfræðingar, sem eru og verða mikilvægur hluti af þeirri teymisvinnu sem nauðsynleg er.“ segir Fjölnir Elvarsson, nýrnalæknir á LSH.
Markmið verkefnisins
Markmiðið er að Móttaka hjúkrunarfræðings verði opin vikulega/hálfsmánaðarlega þess á milli. „Í starfi okkar hjúkrunarfræðinga verður áhersla lögð á forvinnu, skimanir, símtöl, fræðslu og ráðgjöf. Auk þess munum við sjá um hluta af eftirfylgni fyrir og eftir nýrnaígræðslu, í samvinnu við sérfræðinga. Við teljum að þessi samvinna muni auka lífsgæði bæði sjúklinga og aðstandenda þeirra. Þá er verkefnið ekki síður mikilvægt fyrir fagfólk, enda eykur öflug samvinna LSH og SAk sérþekkingu og þjónustu í heimabyggð“ segir Jóhanna María Oddsdóttir, nýrnahjúkrunarfræðingur.
Ávinningurinn margvíslegur
Ávinningur verkefnisins er margvíslegur. „Við teljum að með þessum hætti getum við bætt þjónustu við einstaklinga með nýrnasjúkdóma og fyrir þá einstaklinga sem nú þegar hafa þurft á þjónustu nýrnalækna að halda. Ásamt því að draga úr kostnaði, bæði fyrir skjólstæðinga og samfélagið, getum við létt á legudeildum með færri innlögnum og/eða útskrifað einstaklinga fyrr af legudeild, segir Sólveig Tryggvadóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri blóðskilunar SAk.
Með því að leggja af stað í svona sameiginlegt verkefni með það að leiðarljósi að auka lífsgæði sjúklinga og aðstandenda má gera ráð fyrir fjölbreyttum ávinningi fyrir samfélagið, bæði fyrir skjólstæðinga, fagfólk og hið opinbera.