MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Aukin þjónusta með nýrri rann­sókn­ar­stofu á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-09-09-at-17.31.08
kaffid.is

Til að mæta aukinni þörf hefur rannsóknarstofa EFLU nú tekið til starfa á Akureyri. Með tilkomu hennar hefur leiðin að niðurstöðum styst og þjónusta við svæðið tekið framförum. Rannsóknarstofan er á starfsstöð EFLU á Akureyri og starfar samhliða rannsóknarstofu fyrirtækisins í Reykjavík sem hefur verið starfrækt um árabil. Báðar rannsóknarstofurnar taka við sýnum frá öllu landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Eflu.

Umsjónarmaður rannsóknarstofunnar á Akureyri er líf- og auðlindafræðingurinn Heiðrún Eiríksdóttir. Hún hefur nær áratugar reynslu af greiningu myglusýna og starfaði áður hjá Náttúrufræðistofnun. Auk þess hefur hún aflað sér frekari sérþekkingar á greiningartækni í Hollandi.

„Ég hef starfað við greiningu myglusveppa um árabil og veit hversu mikilvægt það er að niðurstöður séu nákvæmar, áreiðanlegar og unnar af sérfræðingum með viðeigandi reynslu. Slíkar niðurstöður eru forsenda þess að fagaðilar geti metið ástand bygginga á réttan hátt og tekið upplýstar ákvarðanir um viðeigandi úrbætur. Það er því sérstaklega ánægjulegt að leiða nýja rannsóknarstofu EFLU á Akureyri og taka þátt í að styrkja þjónustuna á landsbyggðinni,“ segir Heiðrún.

Sérfræðingar EFLU hafa lengi greint byggingarefni vegna eigin verkefna. Með nýrri rannsóknarstofu skapast tækifæri til að veita öðrum fagaðilum sömu þjónustu. Meðal þeirra sem geta nýtt sér greiningarþjónustuna eru iðnmeistarar eða verktakar sem sinna úrbótum vegna raka- og mygluskemmda og tjónamatsaðilar eða dómskvaddir matsmenn í álitamálum þeim tengdum. Auk greiningar veitir EFLA ráðgjöf við túlkun niðurstaðna, sem nýtist við ákvarðanir um næstu skref í úrbótum.

Tengdar greinar

Uppfært: 9. september 2026