MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Aukin hætta á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Manaskridur_1200
Ljósmynd: Trölli.is· kaffid.is

Mikil úrkoma síðustu daga hefur aukið hættu á skriðuföllum og grjóthruni víða á Norðurlandi, meðal annars í Almenningum við Siglufjörð. Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur af því tilefni sent frá sér viðvörun og hvetur fólk til að sýna sérstaka aðgát á ferðum sínum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa mælst 103 millimetrar af úrkomu á Siglufirði á síðustu 48 klukkustundum og spár gera ráð fyrir áframhaldandi rigningu fram á kvöld.

Vegna úrkomunnar er jarðvegur víða orðinn mjög vatnsmettaður. Við slíkar aðstæður eykst hætta á jarðvegsskriðum, aurskriðum og grjóthruni, sérstaklega í bröttum hlíðum og nálægt giljum.

Lögreglan bendir á að mikilvægt sé að vera vakandi fyrir breytingum í umhverfinu og forðast að dvelja undir giljum eða bröttum hlíðum að óþörfu. Þá eru vegfarendur hvattir til að fylgjast vel með aðstæðum og sýna fyllstu varúð á ferðalögum.

Í tilkynningu lögreglu segir að fólk eigi að fara varlega á meðan úrkomutíðin gengur yfir og hafa í huga að aðstæður geti breyst hratt þar sem jarðvegur er víða kominn að þolmörkum eftir langvarandi rigningar.

Frétt af Trölli.is

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026