Auður hafs og stranda – strandmenningarhátíð á Siglufirði

Dagana 27.-30. ágúst verður strandmenningarhátíðin „Auður hafs og stranda“ haldin á Siglufirði. Hátíðin er á vegum Vitafélagsins – íslensk strandmenning www.vitafelagid.is, í samstarfi við fjölmarga aðila á Siglufirði, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, listamenn og fleiri. Á hátíðinni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem dregur fram fjölbreyttan og ríkan menningararf íslenskra sjávarbyggða og tengsl þjóðarinnar við hafið.
Á þrem dögum verður handverki og hefðum við smíði súðbyrtra báta gert hátt undir höfði, en það var tekið á lista UNESCO árið 2021 og er eini samnorræni menningararfurinn sem þar er að finna. https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/12/14/Sudbyrdingar-a-skra-UNESCO-yfir-oathreifanlegan-menningararf/ Einnig gefst gestum kostur á að sækja handverkssýningar, tónlistarviðburði, kvikmyndasýningar, matarnámskeið, myndlistarsýningar, fara í siglingu, öðlast grunnþekkingu í bátasmíði og hlusta á ljóðlist og þjóðlagatónlist og njóta menningardagskrár þar sem saga, sjómennska, handverk, náttúra og menningararfur fléttast saman. Siglufjörður, með sína einstöku sögu sem einn helsti sjávarútvegs- og síldarbær landsins, er kjörinn vettvangur fyrir hátíð sem þessa.
Markmið hátíðarinnar er að vekja athygli á bátasmíði og öðrum auðæfum íslenskrar strandmenningar, efla þekkingu á sögu og menningarerfðum sjávarplássa og benda á hvernig hægt er að nýta söguna til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar. Einnig til að skapa vettvang þar sem íbúar og gestir geta notið fræðslu, lista og samveru og eflt tengsl í fallegu umhverfi Siglufjarðar.
Hátíðin er opin öllum og dagskráin höfðar jafnt til fjölskyldna, áhugafólks um sögu og menningu, sjómennsku, náttúru og ferðalaga sem og þeirra sem vilja njóta líflegs menningarviðburðar í einni fallegustu sjávarbyggð landsins.
Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði má finna á heimasíðu Vitafélags Íslands:
https://www.vitafelagid.is/audur-hafs-og-stranda
Aðgangur er ókeypis á flesta viðburði hátíðarinnar en frjáls framlög eru vel þegin.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










