NTC

atNorth kynnir nýtt risagagnaver í Danmörku með möguleika á endurnýtingu varma

atNorth kynnir nýtt risagagnaver í Danmörku með möguleika á endurnýtingu varma

Gagnavers- og ofurtölvufyrirtækið atNorth kynnir sitt stærsta gagnaver til þessa í bænum Ølgod í Varde á Vestur Jótlandi í Danmörku. Gagnaverið, sem byggt er frá grunni á 174 hektara lóð, fær nafnið DEN02. Það býður hýsingu (e. colocation) og sérsniðnar lausnir um leið og sérstaklega er hugað að þörfum fyrirtækja sem nota mikið magn gagna. Þar má nefna fyrirtæki sem bjóða skýjaþjónustu auk mikillar reiknigetu (e. hyperscalers) og fyrirtæki sem keyra gervigreind og þunga tölvuvinnslu.

Norðurlönd, þar sem atNorth hannar, byggir og rekur gagnaver, henta slíkri starfsemi afar vel. Kalda loftslagið kælir gagnaverin og lækkar orkukostnað. DEN02 er fjórða gagnaverið sem atNorth hefur í byggingu á Norðurlöndum, en fyrir er atNorth með í rekstri þrjú gagnaver á Íslandi, tvö í Svíþjóð og tvö í Finnlandi.

Taka á DEN02 gagnaverið í notkun síðla árs 2026. Í fyrsta áfanga verður það með afkastagetu upp á 250 megavött, en frekari stækkun möguleg í mörg hundruð megavatta afkastagetu. Stækkun verður í takti við eftirspurn líkt og gert er ráð fyrir í einingahönnun gagnavera atNorth.

Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth:

„Óhætt er að segja að DEN02 sé fyrirmynd gagnavera framtíðar. Það er lifandi dæmi um nýsköpun í geiranum, með áherslu á orkunýtingu í hönnun og notkun nýjustu tækni á sviði endurnýtingar varma, góðu staðarvali í Danmörku og áherslu atNorth á sjálfbærni. Gagnaverið er kjörið fyrir hyperscale fyrirtæki og fyrirtæki á sviði gervigreindar sem vilja draga úr kolefnispori þungrar tölvuvinnslu sinnar.“

Í uppbyggingu sinni leggur atNorth áherslu á hringrásarhagkerfið og hefur þegar skrifað undir samstarfssamning við Wa3rm, leiðandi fyrirtæki á sviði þróunar lausna til nýtingar úrgangstrauma. Með samstarfinu verður hægt að endurnýta varma frá DEN02 í iðnaðargróðurhúsum. Þá getur gagnaverið séð nærsamfélaginu fyrir upphitun húsa og heitu vatni í samstarfi við hitaveitu svæðisins. Eins skoðar atNorth möguleikann á því að laða að sjálfbæra orkuframleiðslu við gagnaverið með nýtingu vind- og sólarorku.

Jacques Ejlerskov, forstjóri Wa3rm:

„Það gleður okkur mjög að ganga til samstarfs við atNorth í sameiginlegri skuldbindingu okkar við hringrásarhagkerfið. Fyrsta flokks gagnaver á borð við DEN02 geta með markverðum hætti stutt aukna endurnýtingu með því að nýta hluti á borð við umframvarma. Í atNorth höfum við fundið samstarfsaðila sem deilir sýn okkar á endurnýtingu.“

DEN02 er annað gagnaver atNorth sem rís í Danmörku, en hið fyrra, DEN01, er í grennd við Ballerup. Stefnt er að opnun þess fyrir annan ársfjórðung 2025.

atNorth er leiðandi norrænt fyrirtæki á sviði gagnaversþjónustu sem býður upp á sjálfbæra og hagkvæma ofurtölvuþjónustu sem laga má að þörfum viðskiptavina á hverjum tíma og nýtur trausts leiðandi fyrirtækja. Árið 2023 keypti atNorth Gompute, leiðandi fyrirtæki á sviði háhraðatölvunarþjónustu (HPC) og jók þar með framboð hugbúnaðarlausna sem sérsniðnar eru að gervigreind og kerfislega mikilvægri háálagstölvuvinnslu.

atNorth nýtir umhverfisaðstæður á borð við kalt loftslag norðurslóða og svo hita frá starfseminni til að ná fram betri orkunýtingu en annars staðar þekkist við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. Hringrásarhagkerfið sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmrar orkunýtingar er haft að leiðarljósi við hönnun gagnavera atNorth.

Höfuðstöðvar atNorth eru í Hafnarfirði, en fyrirtækið rekur sjö gagnaver á Norðurlöndum, þar af þrjú á Íslandi. Fram undan er svo opnun nýrra gagnavera í Helsinki í Finnlandi og í Ballerup í Danmörku 2024, auk þess tíunda sem er í smíði í Kouvola í Finnlandi og þess ellefta í Ølgod í Danmörku.

Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins www.atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.

Sambíó

UMMÆLI