MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Ásgeir Örn Jónsson ráðinn forstöðulæknir bráðalækninga á SAk

Eftir María Hjelm·
740722983_4410799429161397_4675162695189402901_n-1
Mynd: SAk· kaffid.is

Ásgeir Örn Jónsson, sérfræðingur í bráðalækningum, hefur verið ráðinn forstöðulæknir bráðalækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SAk.

Ásgeir lauk læknanámi frá Háskólanum í Debrecen í Ungverjalandi. Hann hefur víðtæka starfsreynslu og hefur starfað á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Kirkjubæjarklaustri, Akranesi, Höfn og Akureyri. Auk þess hefur hann starfað á Landspítala og við Skånes universitetssjukhus í Lundi í Svíþjóð.

„Það er mikill heiður að fá tækifæri til að leiða starfsemi bráðalækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ég hlakka til að takast á við þetta spennandi og krefjandi hlutverk og starfa með því öfluga teymi sem sinnir bráðaþjónustunni. Bráðalækningar byggja á góðri samvinnu, fagmennsku og stöðugri þróun, og markmið mitt er að leggja mitt af mörkum til að efla þjónustuna enn frekar, skapa gott starfsumhverfi og tryggja að sjúklingar fái örugga og góða umönnun,“ segir Ásgeir.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026