Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta, lék sinn fyrsta leik með Al-Arabi frá Katar í dag þegar liðið mætti Toulouse frá Frakklandi í æfingaleik. Leikurinn fór fram í Palamós á Spáni og tapaði Al-Arabi 3-2 eftir að hafa komist 2-0 yfir í leiknum.
Heimir Hallgrímsson fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands er þjálfari Arons hjá Al-Arabi.
Efsta deild Katar hefst í ágúst og mætir Al Arabi til leiks þann 23. ágúst gegn Al Ahli.
UMMÆLI