NTC

Aron Kristófer heim í Þór

Aron Kristófer heim í Þór

Knattspyrnumaðurinn Aron Kristófer Lárusson er genginn til liðs við Þór frá KR og hefur gert samning sem gildir út keppnistímabilið 2026. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Þórs.

Aron er því kominn aftur heim í Þorpið eftir 5 ára fjarveru en hann gekk í raðir ÍA frá Þór sumarið 2019 og hefur síðan þá leikið 74 leiki í efstu deild fyrir ÍA og KR. Alls hefur Aron leikið 203 leiki í meistaraflokki hér á landi fyrir Þór, Völsung, ÍA og KR og skorað í þeim 15 mörk.

„Knattspyrnudeild Þórs og knattspyrnudeild KR komust að samkomulagi um félagaskipti fyrir Aron í gær og er hann nú mættur til Akureyrar og mun æfa með Þórsliðinu síðar í dag þar sem okkar strákar leggja lokahönd á undirbúning fyrir útileik gegn Keflavík í l Lengjudeildinni á morgun. Við bjóðum Aron Kristófer velkominn heim og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni í sumar,“ segir í tilkynningu sem birtist á vef Þórs í gær.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó