MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Aron Einar næst launahæsti íslenski atvinnumaðurinn

Eftir Ingólfur Stefánsson·
550819
kaffid.is

Akureyringurinn Aron Einar Gunnarsson er næst launahæsti íslenski atvinnumaðurinn samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Aron Einar er með um 350 milljónir króna í árslaun hjá knattspyrnuliðinu Al Arabi í Katar.

Aron framlengdi samning sinn við katarska félagið í sumar til eins árs með möguleika á eins árs framlengingu til viðbótar. Aron er 33 ára og á að baki 97 landsleiki fyrir Ísland.

Fjallað er um íslenska atvinnumenn í íþróttum í Áramótum, tímariti Viðskiptablaðsins og Frjálsrar verslunar sem kemur út á morgun, 29. desember 2022. Áskrifendur geta lesið blaðið hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026