NTC

Aron Einar á leið til pólsku meistarana?

Aron Einar á leið frá Cadiff?

Pólskir fjölmiðlar sögðu frá því í gærkvöldi að umboðsmaður landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar væri staddur í Varsjá til að ræða við forráðamenn pólsku meistarana í Legia Varsjá. Pólska liðið er sagt vera á höttunum eftir Aroni sem er samn­ings­bund­inn velska liðinu Cardiff til árs­ins 2018.

Það var vefsíðan Fótbolti.net sem greindi frá þessu í gærkvöldi.

Aron átti frábært tímabil með Cardiff og var val­inn leikmaður árs­ins hjá félaginu eft­ir tíma­bilið. Aron er nú staddur í brúðkaups­ferð á Maldív-eyj­um ásamt Krist­björgu Jón­as­dótt­ur eig­in­konu sinni.

Sambíó

UMMÆLI