Aron Einar kominn heim í Þór
Eftir María Hjelm·

Aron Einar Gunnarsson er genginn til liðs við uppeldisfélagið sitt Þór á Akureyri, sem hann lék fyrst með fyrir 20 árum, þá 17 ára gamall. Hann kemur aftur heim eftir tveggja ára dvöl hjá katarska úrvalsdeildarfélaginu Al Gharafa.
„Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við fyrrum landsliðsfyrirliða Íslands, Aron Einar Gunnarsson, sem mun leika með liðinu út keppnistímabilið. Aron þarf ekki að kynna fyrir Þórsurum og hlökkum við til að sjá enn einn heimamanninn leika sinn fyrst leik í efstu deild á Íslandi,“ segir í tilkynningu frá Þór.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










