Aron Einar Gunnarsson er einn af tíu einstaklingum sem koma til greina sem Íþróttamaður ársins árið 2016. Samtök íþróttafréttamanna hafa greitt atkvæði í kjöri Íþróttamanns ársins 2016 og mbl.is greindi frá því í dag hvaða 10 einstaklingar höfnuðu í efstu sætunum.
Aron Einar var fyrirliði íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í knattspyrnu í sumar þar sem liðið komst alla leið í 8 liða úrslit og sló meðal annars út Englendinga í 16 liða úrslitum. Hann hefur einnig verið lykilmaður í liði Cardiff í ensku Championship deildinni í knattspyrnu.
Íþróttamaður ársins verður tilkynntur á hófi Samtaka íþróttafréttamanna og ÍSÍ í Hörpu fimmtudagskvöldið 29. desember. Þetta er í 61. skipti sem kjör á Íþróttamanni ársins fara fram en núverandi handhafi titilsins er sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir.
Þeir tíu einstaklingar sem tilnefndir eru má sjá hér að neðan ásamt þeim þrem þjálfurum og þrem liðum sem urðu efst í kjörinu.
Íþróttamaður ársins:
Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttir
Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna
Aron Pálmarsson, handbolti
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna
Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund
Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingar
Martin Hermannsson, körfubolti
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf
Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna
Lið ársins:
A-landslið karla í knattspyrnu
A-landslið karla í körfubolta
A-landslið kvenna í knattspyrnu
Þjálfari ársins:
Dagur Sigurðsson
Guðmundur Þ. Guðmundsson
Heimir Hallgrímsson
UMMÆLI