MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Aron Einar farinn frá Þór

Eftir María Hjelm·
aron-einar
Mynd: Þór· kaffid.is

Aron Einar Gunnarsson var kynntur til leiks hjá Þór nýlega en er nú farinn þaðan og búinn að semja við lið í Katar. Þetta kemur fram á vef Fótbolta.net.

Aron Einar spilaði sinn fyrsta og eina leik í 2-1 sigri á Víkingi sem var fyrsta tap Íslandsmeistarana í deildinni í sumar. Staða hans hjá Þór virtist hafa verið skýr frá upphafi og viðbúið að hann myndi ekki endilega klára tímabilið með Þórsurum.

„Ég er búinn að skrifa undir hjá Þór og hugur minn er hér. En þeir (ráðamenn Þórs) vita að staðan mín er skrítin og ég gæti verið farinn eftir tvær vikur, en ég gæti klárað tímabilið. Það eru einhverjar þreifingar í gangi, en ekkert konkrít. Ég er leikmaður Þórs eins og staðan er í dag og vonandi verður það bara þannig,“ sagði Aron eftir leikinn gegn Víkingi.

Aron spilaði með Al-Arabi í Katar frá 2019–2024 áður en hann stoppaði stutt hjá Þór. Hann sneri aftur til Katar og samdi við Al-Gharafa og er nú að fara í þriðja sinn.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026