Í úttekt Wales Online um ensku Championship deildina er Aron Einar Gunnarsson kjörinn einn af tíu bestu leikmönnum deildarinnar.
Aron Einar hefur verið öflugur með Cardiff í vetur þegar hann hefur verið heill heilsu.
Aron er meiddur þessa stundina og er augljóst að Cardiff saknar hans mikið. En Aron verður frá næstu vikurnar eftir aðgerð á ökkla.
,,Það er ekki hægt að horfa fram hjá Aroni þear talað er um besta og áhrifamesta leikmannn Cardiff“ segir Dominic Booth í umfjölluninni hjá Wales Online.
,,Ísmaðurinn er einn af fáum fyrirliðum þjóða sinna sem leikur í næst efstu deild Englands, gæði hans sjást í hverri viku. Án hans er vörn Cardiff ekki sú sama, það er varla til betri leikmaður að vinna 50-50 einvígi og koma boltanum hratt í leik.“
,,Aron er vanmetinn sem tæknilega góður miðjumaður, hjarta varnarinnar hjá Cardiff væri í vandræðum án Arons að verja miðsvæðið.“
Alla greinina og umfjöllun um hina 9 leikmennina er hægt að lesa hér.
UMMÆLI