MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Arnhildur ráðin tónlistarstjóri Glerárkirkju

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-07-27-at-13.04.46
kaffid.is

Arnhildur Valgarðsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem tónlistarstjóri, organisti og kórstjóri Glerárkirkju á Akureyri. Arnhildur hefur störf 1. október næstkomandi. Þetta kemur fram á vef kirkjunnar.

Arnhildur er reynd kirkjutónlistarkona, hún er píanisti, organisti og kórstjóri og hefur undanfarin ár starfað sem organisti og kórstjóri við Guðríðarkirkju í Reykjavík. Auk kirkjustarfsins hefur hún starfað sem undirleikari, tónlistarmaður og kennari og komið víða við í íslensku tónlistarlífi.

Arnhildur er fædd og uppalin á Akureyri, dóttir Dómhildar Sigurðardóttur frá Draflastöðum í Fnjóskadal og Valgarðs Egilssonar læknis, rithöfundar og leiðsögumanns. Hún á því sterkar rætur hér fyrir norðan hlakkar til að snúa aftur heim.

„Við hlökkum til að bjóða Arnhildi velkomna til starfa og erum þess fullviss að reynsla hennar, fagmennska og metnaður muni verða Glerárkirkju og öflugu tónlistarstarfi hennar til blessunar. Við óskum henni hjartanlega til hamingju með ráðninguna og erum spennt að fá hana í hús,“ segir í tilkynningu á glerarkirkja.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026