Arna Sif spilaði sinn 300. leik fyrir Þór/KA
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði í gærkvöld 300. meistaraflokksleik sinn fyrir Þór/KA í sigri liðsins á Þrótti. Þá eru taldir saman leikir í Íslandsmóti, bikarkeppni, deildabikar, meistarakeppni KSÍ og Evrópuleikir.
Arna hefur samtals spilað 411 meistaraflokksleiki á Íslandi en hún á að baki 111 leiki fyrir Val. Þá hefur hún spilað 24 leiki erlendis, 5 með Verona og 19 með Göteborg/Kopparbergs. 435 leikir samtals.
Á vef Þór/KA má sjá ítarlega yfirferð yfir magnaðan fótboltaferil Örnu.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










