Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Íþróttir

Arna Sif og Karen Hulda hlutu helstu verðlaun á lokahófi Þórs/KA

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
arm19090
Ljósmynd: Ármann Hinrik· kaffid.is

Á lokahófi Þórs/KA hlaut miðvarðapar liðsins helstu verðlaun kvöldsins. Arna Sif Ásgrímsdóttir var valin besti leikmaður liðsins, leikmaður leikmannanna og tók hún við Kollubikarnum í annað sinn á ferlinum sem er veittur leikmanni sem sýnir afburða áræðni, hörku og dugnað. Bikarinn er veittur í minningu Kolbrúnar Jónsdóttur sem var bæði leikmaður og stjórnarkona hjá Þór/KA. Arna Sif lék alla leiki Þórs/KA í Bestu deildinni á tímabilinu og á vef Þór/KA er hún sögð vera eins og eins og klettur í vörninni.

Samherji hennar, hin 17 ára gamla Karen Hulda Hrafnsdóttir, var valin efnilegasti leikmaðurinn. Hún tók sér sæti í byrjunarliðinu í kjölfar meiðsla fyrirliðans, Huldu Bjargar Hannesdóttur, og lék alla leiki upp frá því á sínu fyrsta tímabili í efstu deild og skoraði þar sitt fyrsta mark.

Tengdar greinar

Uppfært: 4. október 2026