MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Arna G Valsdóttir og Aðalsteinn Þórsson sýna ný verk í Fræðasetri um forystufé

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
setur
kaffid.is

Listamenn sumarsýningar Fræðaseturs um forystufé á Svalbarði í Þistilfirði sumarið 2026 eru þau Arna G. Valsdóttir og Aðalsteinn Þórsson. Bæði sýna þau ný verk, unnin sérstaklega fyrir sýninguna; Arna sýnir myndbandsverk inni á safninu en Aðalsteinn sýnir muni/objekta á útisvæði.

Eftir hefðbundið myndlistarnám á Íslandi, Arna í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Aðalsteinn í Myndlistaskólanum á Akureyri, luku þau hvort um sig framhaldsnámi í myndlist frá hollenskum listaháskólum. Arna útskrifaðist frá Jan van Eyck Academie í Maastricht seint á níunda áratug síðustu aldar og Aðalsteinn frá The Dutch Art Institute (þá AKI2) í Enschede á þeim tíunda. Síðan hafa þau bæði verið starfandi myndlistarmenn og eiga fjölbreyttan listferil að baki.

Sýningaropnun: Sunnudaginn 14. júní kl. 14.00. Verkin verða til sýnis á opnunartíma setursins í sumar.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026