
Kjarnafæðismótið í fótbolta hélt áfram í dag þar sem tveir leikir fóru fram í Boganum en báðir voru þeir í B-riðli.
Inkasso-deildarlið Þórs átti ekki í miklum vandræðum með 2.deildarlið Völsungs frá Húsavík en lokatölur urðu 2-0 fyrir Þór og var það reynsluboltinn Ármann Pétur Ævarsson sem gerði bæði mörk Þórs.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
2.flokkur KA mætti svo 3.deildarliði KF og höfðu Fjallabyggðamenn betur þar sem þeir skoruðu fjögur mörk gegn tveim mörkum KA.
Úrslit dagsins
Þór 2-0 Völsungur
1-0 Ármann Pétur Ævarsson (´10)
2-0 Ármann Pétur Ævarsson (´54)
KA 2 2-4 KF
0-1 Valur Þrastarson (´10)
0-2 Grétar Áki Bergsson (´41)
1-2 Brynjar Skjóldal Þorsteinsson (´65)
1-3 Aksentije Milisic (´70)
2-3 Áki Sölvason (´75)
2-4 Hilmir Ólason (´90)










