Íslandsmeistarar Þór/KA hafa samið við Ariana Calderon. Ariana gengur til liðs við Þór/KA frá Val þar sem hún spilaði 18 leiki og skoraði 7 mörk á síðasta tímabili.
Ariana spilar i fremstu víglínu með Mexico en spilaði á miðjunni hjá Val í fyrra og var talin vera með betri leikmönnum deildarinnar á síðasta leiktímabili.
Natalia Gomez mun ekki spila með Þór/KA aftur næsta sumar og mun Ariana líklega fylla skarð hennar.
We like Mexican players! We welcome Ari, @aricalderon5, to Þór/KA. #fotboltinet #ÞórKA pic.twitter.com/nZC8wSMC3a
— Þór/KA (@thorkastelpur) December 30, 2017
UMMÆLI