Heilbrigðisstofnun Norðurlands og heilbrigðisráðuneytið sendu í dag frá sér tilkynningu þar sem áréttað er að stefnt sé að því að taka í notkun tvær nýjar heilsugæslustöðvar á Akureyri.
„Heilsugæslustöðin Sunnuhlíð verður tilbúin um áramótin og stefnt er að því að mest öll klínísk þjónusta HSN á Akureyri flytji þangað í janúar og heilsugæslustöðinni í Hafnarstræti verði lokað á sama tíma. Auk starfsaðstöðu í Sunnuhlíð leigir HSN tímabundið húsnæði fyrir heimahjúkrun í Skarðshlíð og sálfélagslega þjónustu og stoðþjónustu á Hvannavöllum 14,“ segir í tilkynningunni.
„Unnið er að samningum um byggingu annarrar heilsugæslustöðvar við Þórunnarstræti á svokölluðum tjaldsvæðisreit. Stefnt er að því að hún taki til starfa á árinu 2026. Komið hefur í ljós áhugi á fjölbreyttara rekstrarformi í heilsugæsluþjónustu á Norðurlandi. Heilbrigðisstofnun Norðurlands og heilbrigðisráðuneytið munu sameiginlega gera greiningu á því hvort hyggilegt sé að stofnunin reki báðar stöðvarnar eða hvort rekstur annarrar þeirra verði boðin út.“
UMMÆLI