NTC

Áramótabrennan á sama stað og í fyrra

Áramótabrennan á sama stað og í fyrra

Áramótabrenna Akureyringa verður á sama stað og í fyrra, á auðu svæði nokkru sunnan við golfskálann á Jaðri. Þar verður kveikt í myndarlegri brennu kl. 20.30 á gamlárskvöld. Þetta kemur fram á vef bæjarins í dag.

Á meðfylgjandi loftmynd frá vef Akureyrarbæjar má sjá brennustæðið, svæði þar sem leggja má bifreiðum og gönguleiðir að brennunni. 

Árleg flugeldasýning verður skammt frá höfuðstöðvum Norðurorku og hefst hún um kl. 21.00. Það er Björgunarsveitin Súlur sem sér um sýninguna en hún er í boði Norðurorku.

„Förum varlega með skotelda um áramót og munum að hirða upp eftir okkur flugeldarusl og koma í viðeigandi flokkun. Flugeldarusl má alls ekki fara í blandaðan heimilisúrgang. Sérstökum gámum fyrir það verður komið fyrir við verslanir Bónus í Naustahverfi og Langholti sem og við grenndarstöð norðan við Ráðhús,“ segir á vef bæjarins.

Smellið hér til að sjá loftmyndina í fulltri stærð (opnast í nýjum glugga).

Sambíó

UMMÆLI