Í dag var annað smitið vegna COVID-19 staðfest á Norðurlandi eystra samkvæmt upplýsingum á vef covid.is sem Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra standa að baki. Nýjar upplýsingar um smit voru birtar á vefnum klukkan 11.
Fyrsta smitið á Norðurlandi eystra greindist síðustu helgi en einstaklingum í sóttkví hefur fjölgað töluvert í vikunni. Nú eru alls 177 einstaklingar í sóttkví á Norðurlandi eystra en þeir voru um 20 áður en fyrsta smit greindist.
330 smit vegna veirunnar hafa verið staðfest hér á landi en 287 þeirra eru á Höfuðborgarsvæðinu þar sem 2595 manns eru nú í sóttkví.
Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700.Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma.Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.