Anna Soffía júdókona ársins – Alexander efnilegastur
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Anna Soffía Víkingsdóttir úr KA var valin júdókona ársins á uppskeruhátið Júdósambands Íslands sem fór fram í vikunni í húsakynnum ÍSÍ. Þá var Alexander Heiðarsson valin efnilegasti júdómaður Íslands.
Hans Rúnar Snorrason fékk heiðurgráðuna 2. dan og dómari ársins var valin Jón Kristinn Sigurðsson. Edda Ósk Tómasdóttir fékk bronsmerki JSÍ fyrir störf í þágu júdó.
Við óskum þessum KA konum og mönnum innilega til hamingju.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










