U19 ára landslið kvenna í fótbolta gerði 1-1 jafntefli við Ungverjaland þegar liðin mættust í vináttulandsleik á Grosics Gyula Stadion í Tatabánya í Ungverjalandi í morgun.
Anna Rakel Pétursdóttir, leikmaður Þór/KA, skoraði mark Íslands á 25. mínútu leiksins en Anna Rakel átti glæsilegt skot sem endaði í marki ungverska liðsins að því er segir á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands.
Andrea Mist Pálsdóttir er sömuleiðis hluti af U19 ára landsliðinu en hún bar fyrirliðabandið í leik dagsins.
UMMÆLI