MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Andri Freyr til liðs við KA

Eftir Ingólfur Stefánsson·
andrifreyr-sida2
kaffid.is

Andri Freyr Friðriksson er genginn í raðir handboltaliðs KA á láni frá Aftureldingu. Andri Freyr er 19 ára örvhentur hornamaður. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KA í dag.

„Andri er metnaðarfullur og efnilegur leikmaður sem mun klárlega koma sterkur inn í lið okkar KA-manna fyrir komandi handboltavetur. Andri er mjög góður slúttari í horninu og er auk þess öflugur hraðaupphlaupsmaður og alvöru keppnismaður. Andri Freyr er nú þegar mættur norður og búinn að taka nokkrar æfingar með liðinu,“ segir í tilkynningu KA.

„Við erum virkilega ánægðir með að fá Andra Frey í KA liðið okkar. Andri er metnaðarfullur og efnilegur leikmaður sem mun klárlega hjálpa liðinu. Að sama skapi er ég afskaplega ánægður með þessa samvinnu við Aftureldingu, enda er um mikið þroskatækifæri að ræða fyrir ungan handboltamann að flytja til Akureyrar,“ segir Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, á heimasíðu félagsins.

„Andri er heilsteyptur strákur sem smellpassar í okkar lið, hefur æft með okkur að undanförnu og er tilbúinn í slaginn með KA. Við erum með mikinn metnað í handboltanum okkar og verður gaman að vinna með Andra.“

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026