46. Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir af Skíðafélagi Akureyrar í Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 20.-23. apríl. Leikunum hefur verið frestað undanfarin tvö ár vegna Covid-19.
Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins með um 800 keppendur á aldrinum 4-15 ára ár hvert. Þeim fylgja þjálfara, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 2500-3000 manns sæki leikana með einum eða öðrum hætti.
Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og hefur sú grein verið að eflast og stækka innan leikanna.
Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um nokkurra ára skeið, en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.
Nú er einnig 4 og 5 ára börnum boðið að taka þátt í leikunum. Þessi börn taka þátt í leikjabraut þar sem allt snýst um að vera með og skemmta sér, en ekki að sigra. Fá allir þátttakendur í leikjabraut verðlaun fyrir þátttökuna og allir fara því brosandi heim. Í ár eru 54 börn á þessum aldri skráð til leiks.
Eftir örlítið risjóttan skíðavetur um allt land eru aðstæður í Hlíðarfjalli nú með góðu móti og snjómagn í meðallagi. Búast mótshaldarar við miklu fjöri á leikunum í ár, sérstaklega þar sem ekki hefur tekist að halda leikana tvö undanfarin ár sökum faraldursins. Andrésarleikarnir eru alltaf hápunktur hvers skíðavetrar hjá börnunum og marga sem þyrstir í að koma til Akureyrar og taka þátt í fjörinu.
Nú eru 776 börn skráð frá 18 félögum á Íslandi. Flestir iðkendur koma frá heimamönnum í Skíðafélagi Akureyrar eða 134 keppendur. Í heildina eru 580 þátttakendur skráðir í alpagreinar, 138 í skíðagöngu og 76 í brettakeppnina. Af þessum eru 3 skráðir í stjörnuflokk.
Að venju verða leikarnir settir í Íþróttahöllinni á Akureyri miðvikudagskvöldið 19. apríl að lokinni myndarlegri skrúðgöngu allra þátttakenda frá íþróttasvæði KA kl 19. Fimmtudag, föstudag og laugardag er svo keppt í öllum greinum, auk þess sem yngri þátttakendur fara í leikjabrautir. Veglegar kvöldvökur og verðlaunaafhendingar í Íþróttahöllinni eru í lok hvers keppnisdags.