MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Andarnefjur í Eyjafirði

Eftir Ingólfur Stefánsson·
216458401_1557426031269662_1713362788318639264_n
kaffid.is

Í gær fengu gestir í Hvalaskoðun Akureyrar óvæntan glaðning og sáu hóp af andarnefjum í hvalaskoðunarferð. Óvanalegt þykir að sjá andarnefjur nálægt ströndum.

„Í gær upplifðum við þau mögnuðu forréttindi að sjá andarnefjur! Þessi dýr búa í Norður-Atlantshafi og koma sjaldan nálægt landsvæði þar sem þau búa á djúpum svæðum og geta kafað í allt að klukkutíma. Við sáum andarnefjurnar þó ekki bara einu sinni, þær köfuðu í 20 mínútur í senn og við fengum fullt af tækifærum til þess að sjá þær,“ segir á Facebook síðu Whale Watching Akureyri.

Andarnefjan er djúpsjávarhvalur og hér við land er algengast að sjá hana við landgrunnsbrúnina á sumrin frá apríl og fram í miðjan ágúst. Hún virðist iðulega lenda í vandræðum fari hún of nálægt ströndum og er meðal þeirra hvalategunda sem oftast finnast reknar á fjörur á Íslandi.

https://www.facebook.com/plugins/post.php?href=https%3A%2F%2Fwww.facebook.com%2Fwhalewatchingakureyri%2Fposts%2F1557428474602751&show_text=true&width=500

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026