Mikill meirihluti þeirra sem nýtt hefur Loftbrú frá því að henni var komið á fót er ánægður með úrræðið en telur ástæðu til að hækka afsláttinn og fjölga ferðum sem séu innifaldar. Langflestir nýttu ferðirnar til þess að heimsækja ættingja og vini en margir nota Loftbrú einnig til að sækja heilbrigðisþjónustu, í tengslum við íþróttaiðkun og vegna skólasóknar.
Þetta er meðal þess sem fram kom í rannsókn sem Austurbrú vann í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga á landsbyggðinni og Vegagerðina árið 2022. Um 76% þátttakenda höfðu nýtt sér Loftbrú, mestmegnis Íslendingar en niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að kynna þurfi úrræðið betur fyrir íbúum af erlendum uppruna. Samkvæmt gögnum Vegagerðarinnar um Loftbrú var heildarfjöldi þeirra sem nýtti sér hana 57.059 árið 2021. Um helmingur flugfarþega var með lögheimili á Norðurlandi eystra eða á Austurlandi.Vegagerðin hefur umsjón með Loftbrú fyrir hönd ríkisins og sinnir öllu eftirliti og umsýslu henni tengdri. Bakendakerfi Loftbrúar er hýst á island.is en heimasíðan loftbru.is er rekin af upplýsinga- og þjónustuveitunni Stafrænu Ísland.
Loftbrú er hluti af samgönguáætlun
Í júní 2020 samþykkti Alþingi úrræðið Loftbrú sem hluta af samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034 og opnað var fyrir notkun þess í september 2020. Einstaklingar sem geta nýtt Loftbrú hafa lögheimili í 96 póstnúmerum á Vestfjörðum, hluta af Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Hornafirði og í Vestmannaeyjum. Afsláttarkjörin, sem nema 40% af heildarverði miða, eiga að nýtast íbúum svæðanna til að sækja sér miðlæga þjónustu og afþreyingu á höfuðborgarsvæðinu og til að heimsækja ættingja og vini.
Frétt af vef SSNE. Lesa má nánari niðurstöður rannsóknarinnar hér.
UMMÆLI