Ánægja með 66°NORTH CUP

Alþjóðlega skíðamótinu 66°NORTH CUP lauk í Hlíðarfjalli í gær þegar fram fóru tvær stórsvigskeppnir. Fresta þurfti keppni á þriðjudaginn vegna veðurs en veðuraðstæður voru hinar bestu í gær þegar keppnin fór fram í sól og blíðu í Suðurbakka Hlíðarfjalls. Aðstæður voru til fyrirmyndar en upphitun keppenda fólst meðal annars í því að skafa lausan snjó úr bakkanum. 

Í tilkynningu Skíðafélags Akureyrar segir að allt hafi gengið vel fyrir sig og almenn ánægja hafi verið með mótið. Á morgun hefst svo Skíðamót Íslands í alpagreinum.

„SKA þakkar öllum keppendum, þjálfurum og öllum sjálfboðaliðunum sem komu að mótinu kærlega fyrir flott mót. Það verður ekki sagt nægilega oft hversu ríkt SKA er af öflugu fólki. Hjálpin einskorðaðist þó ekki við SKA heldur var það mikilli samstöðu, allra sem sóttu mótið, að þakka að hlutirnir gengu vel fyrir sig,“ segir í tilkynningu Skíðafélags Akureyrar.

Úrslit tímatöku má sem fyrr nálgast á heimasíðu FIS og í Mótakerfi SKÍ

Hér að neðan eru myndir frá verðlaunaafhendingum beggja móta. Veitt voru verðlaun fyrir Karla- og kvennaflokk sem og fyrir U18-KK og U18-KVK. SKA óskar verðlaunahöfum innilega til hamingju.

Verðlaunaafhending fyrir fyrra stórsvigsmótið

u18kvk

Flokkur U18-KVK

1. Hrefna Lára Zoega (UÍA)

2, Rakel Lilja Sigurðardóttir (UÍA)

3. Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir (UÍA)

kvk

Kvennaflokkur

1. Sonja Lí Kristinsdóttir (SKA)

2. Þórdís Helga Grétarsdóttir (VÍK)

3. Elín Elmarsdóttir Van Pelt (VÍK)

Flokkur U18-KK

1. Arnór Alex Arnórsson (KR)

2. Herman Brudvik Soerensen (Noregur)

3. Ruben Loos (Holland)

kk

Karlaflokkur

1. Gauti Guðmundsson (KR)

2. Carl Ottosson (Bandaríkin)

3. Jón Erik Sigurðsson (Fram)

Verðlaunaafhending fyrir seinna stórsvigsmótið

u18kvk

Flokkur U18-KVK

1. Hrefna Lára Zoega (UÍA)

2. Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir (UÍA)

3. Rakel Lilja Sigurðardóttir (UÍA)

kvk

Kvennaflokkur

1. Elín Elmarsdóttir Van Pelt (VÍK)

2. Sonja Lí Kristinsdóttir (SKA)

3. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (ÁRM)

Flokkur U18-KK

1. Arnór Alex Arnórsson (KR)

2. Ruben Loos (Holland)

3. Herman Brudvik Soerensen (Noregur)

Karlaflokkur 

1. Gauti Guðmundsson (KR)

2. Matthías Kristinsson (SÓ)

3. Jón Erik Sigurðsson (Fram)

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!