Akureyrarbær hefur auglýst stöðu forstöðumanns Amtsbóka- og Héraðskjalasafnsins á Akureyri til umsóknar. Í auglýsingunni segir að um sé að ræða 100% starf sem er ótímabundið. Æskilegt sé að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, annars samkvæmt samkomulagi.
„Þetta er lykilstarf fyrir metnaðarfullan leiðtoga sem vill hafa raunveruleg áhrif á miðlun þekkingar, varðveislu menningararfs og þróun nútímalegrar þjónustu fyrir samfélagið. Amtsbókasafnið gegnir einstöku hlutverki í íslensku menningarlífi, meðal annars sem viðtakandi skylduskila og starfar í nánu samspili við Héraðsskjalasafnið á Akureyri,“ segir í auglýsingu bæjarins.
Forstöðumaður ber ábyrgð á stefnumótun, rekstri og daglegri stjórnun Amtsbókasafnsins og Héraðsskjalasafnsins í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu Akureyrarbæjar. Starfið er bæði faglegt og stjórnunarlegt og krefst góðrar yfirsýnar, frumkvæðis og hæfni í mannauðsmálum og rekstri. Forstöðumaður heyrir undir sviðsstjóra þjónustu- og menningarsviðs og leiðir fjölbreyttan hóp starfsfólks í lifandi og síbreytilegu starfsumhverfi.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum og umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2026.










