Alþjóðlegur hópur sjávarútvegssérfræðinga heimsækir Akureyri

Fimmtán þátttakendur í Sjávarútvegsskóla GRÓ ásamt tveimur starfskröftum Hafrannsóknarstofnunar eru þessa dagana í námsheimsókn á Akureyri. Heimsóknin er hluti af norðurferð þátttakenda þar sem áhersla er lögð á íslenskan sjávarútveg, fiskveiðistjórnun, sjávarútvegsstefnu og tengsl sjávarútvegs við samfélög. Fjallað er um heimsóknina á vef Háskólans á Akureyri, unak.is.
„Samstarf Háskólans á Akureyri og Sjávarútvegsskóla GRÓ hefur skapað öflugt alþjóðlegt tengslanet á sviði sjávarútvegs og gefur bæði þátttakendum og starfsfólki HA tækifæri til að miðla þekkingu og reynslu þvert á landamæri,“ segir í tilkynningu HA.
Alls eru 17 þátttakendur í árgangi Sjávarútvegsskóla GRÓ frá tíu löndum í Afríku, Asíu og Karíbahafi. Þeir sérhæfa sig á þremur sviðum: fiskveiðistefnu og stjórnun, mati og vöktun á nytjastofnum og sjálfbæru fiskeldi.
Eftir norðurferðina munu sex þátttakendur frá Kenía, Indónesíu, Malaví, Líberíu, Jamaíku og Sierra Leone dvelja áfram á Akureyri við nám og verkefnavinnu fram í febrúar. Þetta er sjötta árið sem þátttakendur Sjávarútvegsskóla GRÓ dvelja á Akureyri sem hluti af námskeiðinu.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. október 2026





