Alþjóðlegt samstarf í hjúkrunarfræði hjá nemum við HA

Tólf stúdentar á öðru ári í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri tóku nýverið þátt í alþjóðlegu námskeiði í Lissabon. Ferðin er hluti af valnámskeiði í hjúkrunarfræði við háskólann og gefur fjórar ECTS-einingar. Námskeiðið var dagana 28. september til 2. október og ásamt íslendingunum voru hjúkrunarnemar frá Portúgal og Noregi. Frá þessu er greint á vef HA þar sem kemur fram að ferðin var hluti af samstarfi þriggja háskóla um hermikennslu og heilsufarsmat með aðstoð hugbúnaðarins Body Interact. Auk Háskólans á Akureyri taka þátt í verkefninu Rauða kross háskólinn í Lissabon í Portúgal og Háskólinn í Suðaustur-Noregi.
„Body Interact er gagnvirkur hugbúnaður fyrir hermikennslu þar sem nemendur takast á við raunhæf klínísk tilfelli og þurfa að beita þekkingu sinni, gagnrýninni hugsun og klínískri ákvarðanatöku. Hugbúnaðinn er hægt að nýta bæði í stað- og fjarnámi og geta nemendur jafnframt notað hann í eigin tölvum og snjalltækjum. Samstarfsskólarnir hafa nú þegar nýtt hugbúnaðinn í kennslu undanfarin fimm ár og hefur Háskólinn á Akureyri fjárfest í ársáskrift að Body Interact. Samstarfið gefur því kennurum og stúdentum við HA mikilvægt tækifæri til að nýta reynslu samstarfsskólanna og miðla þekkingu sín á milli,“ segir um búnaðinn á vef HA.
Haustið 2025 fóru 9 stúdentar á öðru ári í hjúkrunarfræði til Noregs. Í ár var svo komið að portúgalska samstarfsháskólanum að taka á móti hópnum. Haustið 2027 er síðan stefnt að því að nemendur og kennarar frá Portúgal og Noregi komi til Akureyrar. Þátttaka nemenda og kennara í samstarfinu er styrkt af Erasmus+.
Nánar á vef Háskólans.
Tengdar greinar
Uppfært: 8. október 2026





