Mynd: Akureyri.is/Akureyrarstofa
Mynd: Akureyri.is/Akureyrarstofa

Allt skólahald fellur niður á Akureyri í dag

Skólahald í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar og Tónlistarskólanum fellur niður í allan dag, miðvikudaginn 11. desember, vegna veðurs og ófærðar.

Enn er rauð viðvörun í gildi á Norðurlandi eystra, veður gengur ekki niður fyrr en síðar í dag og víðast hvar er ófært um götur bæjarins.

Tilkynning af vef Akureyrarbæjar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!