MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Allt að verða klárt fyrir Eina með öllu á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
03.08.2025-ein-med-ollu-sunnudagur-sparitonleikarnir-24
kaffid.is

Það styttist í að Akureyri fyllist af lífi, gleði og góðri stemningu þegar fjölskylduhátíðin Ein með Öllu hefst um verslunarmannahelgina.

Undirbúningur stendur nú sem hæst og næstu dagar fara í að leggja lokahönd á framkvæmd hátíðarinnar. Brátt verður allt tilbúið til að taka á móti þúsundum gesta og heimafólki á Akureyrarvelli, í miðbænum og í Kjarnaskógi.

„Það ríkir alltaf sérstök tilhlökkun þessa síðustu daga. Ótal einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök, viðbragðsaðilar og sjálfboðaliðar hafa unnið saman að því að gera hátíðina sem glæsilegasta og við getum varla beðið eftir að sjá bæinn fyllast af fólki,“ segja forsvarsmenn hátíðarinnar.

Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt og ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi. Boðið verður upp á fjölskylduskemmtun, útivist, tónleika, markaðsstemningu og fjölda viðburða víðs vegar um bæinn.

Skipuleggjendur hafa lagt áherslu á að huga að öllum smáatriðum, en eitt er þó sem enginn ræður yfir – veðrið. „Við getum skipulagt dagskrána, byggt sviðin, sett upp ljósin og tekið á móti gestum með bros á vör, en veðrið ræður sér sjálft. Spáin er alltaf að verða betri og við erum bjartsýn. Akureyringar mæta öllum aðstæðum með sól í hjarta og góðu skapi,“ segja forsvarsmenn hátíðarinnar sem hvetja gesti til að vera viðbúna öllum aðstæðum.

Gestir eru hvattir til að kynna sér dagskrána, nýta sér ókeypis strætó og gefa sér tíma til að njóta alls þess sem Akureyri hefur upp á að bjóða. Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.einmedollu.is og á samfélagsmiðlum hátíðarinnar.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026