MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

AllergyID hlýtur styrk úr Styrktarsjóði Astma- og ofnæmisfélagsins

Eftir Ingólfur Stefánsson·
allergyID
kaffid.is

Akureyrska ofnæmissmáforritið AllergyID hefur hlotið styrk úr Styrktarsjóði Astma- og ofnæmisfélags Íslands og jafnframt verið kynnt fyrir vinnuhópi EFA (Evrópusamtaka sjúklingafélaga á sviði astma og ofnæmis). Þetta kemur fram í tilkynningu frá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands.

Þar segir að AllergyID sé séríslensk uppfinning og einstakt á heimsvísu. Appið sé fullþróað og þegar komið í notkun víðs vegar um heiminn. Þar segir einnig að samskiptavandi sé ein algengasta ástæða alvarlegra ofnæmisviðbragða utan heimilis.

AllergyID er farsímaforrit sem býr til stafræn ofnæmiskort. Þú velur ofnæmin og/eða matarvenjur þínar, stillir hversu alvarlegt hvert þeirra er og appið býr til skýrt kort sem þú getur deilt hvar sem er til dæmis á veitingastað, í matarboði hjá vinum, hjá foreldrum bekkjarfélaga barnsins þíns eða á ferðalagi erlendis.

Bjarni vinnur nú að frekari útbreiðslu appsins. Grunnforritið er frítt inni á vefverslun App Store og Google Play en einnig er boðið upp á áskriftarmöguleika.

Kaffið.is ræddi við Bjarna í vor. Viðtalið má finna í heild hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026