Sundfólk sundfélagsins Óðins á Akureyri árið 2024 eru þau Alicja Julia Kempisty og Örn Kató Arnarsson. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Óðins.
Alicja Julia var stigahægt sundkvenna Óðins er hún hlaut 595 FINA stig fyrir 200 metra skriðsund í 25 metra laug á Íslandsmeistaramótinu sem fór fram í Hafnarfirði í nóvember. Tími Alicju Juliu var 2:11.14
Örn Kató var stigahæstur sundmanna Óðins er hann hlaut 618 FINA stig fyrir 1500 metra skriðsund í 25 metra laug á Svíþjóðarmeistaramótinu sem fór fram í Helsingborg í nóvember. Tími Arnar Kató var 16:34.24. Örn Kató æfir í Svíþjóð og tók faðir hans, Arnar Þór Sigursteinsson, við viðurkenningunni fyrir hans hönd.
„Sundfélagið Óðinn óskar Alicju Juliu og Erni Kató innilega til hamingju með árangurinn,“ segir í tilkynningu Óðins.
UMMÆLI