Alheimsfrumsýning hjá Freyvangsleikhúsinu

Það verður alheimsfrumsýning hjá Freyvangsleikhúsinu næstkomandi föstudag, 9. oktobér klukkan 20:00 og svo verða eingöngu 6 sýningar í október. Freyvangsleikhúsið sýnir verkið Útsynningur í október.
Útsynningur er glænýtt leikverk eftir Hjálmar Arinbjarnarson, sem er búin að vera hjá Freyvangsleikhúsinu í yfir tuttugu ár. Leikstjórinn er Jóhanna S. Ingólfsdóttir sem er einnig formaður Freyvangsleikhússins.
Verkið gerist í rauntíma á einni kvöldstund, í búningsklefa hjá áhugaleikfélagi úti á landi, á meðan þau eru að sýna á sviðinu í félagsheimilinu verkið Cloud nine. Þetta tiltekna áhugaleikfélag er með aðstöðu í félagsheimilinu í sveitinni og í þessu félagsheimili er alveg glataður húsvörður sem er búin að fylla hinn búningsklefann af hljómsveitar drasli svo þau þurfa að samnýta þennan eina.
Það er ýmislegt sem getur gengið á þegar 11 leikurum er troðið í einn búningsklefa, svo ekki sé talað um sýningarstjórann sem virðist ekki alveg starfi sínu vaxinn. Ofan á það ákveðu svo einn leikarinn að taka með sér kærustuna í búningsklefann, sem er ekki til að bæta ástandið.
Sýningar eru komnar í sölu á tix.is og um að gera að ná sér í miða sem fyrst þar sem þetta verða eingöngu sex sýningar.
Tengdar greinar
Uppfært: 5. október 2026





