Alfreð Leó Svansson og Sandra María Jessen voru valin íþróttafólk Þórs árið 2024 í gær við hátíðlega athöfn.
Alli, eða allee eins og hann heitir innan Counter Strike, var valinn íþróttakarl Þórs þetta árið. Alli er einn af lykilleikmönnum Þórs í Ljósleiðaradeildinni, hann hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á þessu tímabili og landaði hann meðal annars Íslandsmeistaratitlinum með Þór.
„Alli hefur sýnt framúrskarandi hæfileika og nákvæmni, sem hefur gert hann að ómissandi leikmanni í liðinu. Með stöðugri frammistöðu og mikilvægu framlagi i leikjum hefur Alli verið lykilmaður í mörgum sigrum Þórs. Það er ljóst að hann er einn af bestu leikmönnum deildarinnar og framtíðin er björt fyrir hinn síunga Alla og Þórsliðið. Einnig var lið Þórs valið lið ársins í vor,“ segir á vefsíðu Þórs.
Sandra María Jessen, knattspyrnukona, var valin íþróttakona Þórs árið 2024.
„Hún tók þátt í öllum leikjum Þórs/KA í öllum KSÍ-mótunum og var í byrjunarliði í öllum þeirra nema einum. Í einum bikarleik kom hún inn sem varamaður eftir leikhlé og skoraði sigurmarkið skömmu síðar. Hún spilaði 23 leiki í Bestu deildinni, þrjá í Mjólkurbikarnum og sex í Lengjubikarnum. Sandra María var valin besti leikmaður Bestu deildarinnar af leikmönnum deildarinnar og var að auki markadrottning deildarinnar. Hún skoraði alls 33 mörk í leikjum Þórs/KA í KSÍ-mótunum, 22 mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni, tvö mörk í þremur leikjum í Mjólkurbikarkeppninni og níu mörk í sex leikjum í Lengjubikarnum. Að auki átt hún níu stoðsendingar í þessum 32 leikjum. Þá kom hún við sögu í níu landsleikjum, í byrjunarliði í mörgum þeirra,“ segir á vefsíðu Þórs.
UMMÆLI