MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Alfreð Gíslason fær heiðursviðurkenningu

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Uutflutningsverdhlaunin20264862
Ljósmynd: Íslandsstofa· kaffid.is

Alfreð Gíslason handboltaþjálfari tók í fyrradag við heiðursviðurkenningu Útflutningsverðlauna forseta Íslands á Bessastöðum fyrir langan feril á alþjóðavettvangi. Alfreð hóf þjálfaraferil sinn hjá uppeldisfélaginu KA á Akureyri en hefur síðan starfað í Þýskalandi um áratugaskeið. Þar stýrði hann liðum Magdeburg og Kiel til fjölda Þýskalands- og Evrópumeistaratitla áður en hann tók við þýska landsliðinu, sem vann til silfurverðlauna undir hans stjórn á Ólympíuleikunum 2024 og EM 2026. Í rökstuðningi kemur fram að hann hljóti viðurkenninguna ekki síður fyrir að vera brautryðjandi sem hafi opnað leiðir fyrir íslenska þjálfara erlendis. Við sömu athöfn hlaut Bláa lónið Útflutningsverðlaunin fyrir uppbyggingu á alþjóðlegu vörumerki.

Nánar á vef Íslandsstofu.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026