MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Alfa ráðin framkvæmdastýra Aflsins

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-08-07-at-16.48.31
kaffid.is

Alfa Jóhannsdóttir hefur verið ráðin ný framkvæmdastýra Aflsins og tekur við starfinu á næstunni. Þetta kemur fram á heimasíðu Aflsins í dag.

Alfa er afbrotafræðingur að mennt með meistaragráðu í félagsvísindum og er jafnframt menntuð sáttamiðlari. Hún hefur um árabil starfað að forvörnum gegn ofbeldi, réttindum barna og ungmenna og eflingu þekkingar og viðbragða við ofbeldi.

Hún býr yfir víðtækri reynslu af verkefnastjórnun, stefnumótun, ráðgjöf og þverfaglegu samstarfi. Auk þess hefur hún haldið fjölda fyrirlestra og vinnustofa um ofbeldi, forvarnir og fagleg vinnubrögð.

„Þekking og reynsla Ölfu fellur vel að hlutverki og framtíðarsýn Aflsins og hlökkum við til að njóta krafta hennar við áframhaldandi uppbyggingu og þróun samtakanna. Við bjóðum Ölfu hjartanlega velkomna til starfa,“ segir í tilkynningu Aflsins.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026