Alexander Kristinn meðal höfunda nýrrar rannsóknar um andvana fæðingar

Alexander Kristinn Smárason, prófessor við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans og Sjúkrahúsið á Akureyri, er einn höfunda nýrrar vísindagreinar sem birt hefur verið í hinu virta vísindatímariti Acta Obstetricia et Gynecologica Scandinavica. Greinin ber heitið Clinicopathological phenotypes of singleton stillbirth: A retrospective cohort study. Greint er frá á vef Sjúkrahússins á Akureyri, sak.is.
Niðurstöðurnar sem eru birtar í þessari grein byggja á öllum andvana fæðingum í einburameðgöngum á Íslandi á árunum 1996–2021, alls 338 tilfellum. Markmiðið var að bæta skilning á breytingum í fylgju og naflastreng sem geta tengst andvana fæðingu og hvernig þær tengjast klínískum einkennum meðgöngunnar.
Niðurstöðurnar sýna að í rúmlega 70% tilfella fundust einkennandi breytingar í fylgju sem geta varpað ljósi á mögulegar skýringar á andvana fæðingu. Rannsakendur greindu sérstaklega fjögur meginmynstur fylgjuskemmda og sýndu fram á að mismunandi mynstur tengjast ólíkum áhættuþáttum og mismunandi stigum meðgöngu.
„Það hefur verið virkilega gefandi að fá tækifæri til að vera í doktorsnefnd Ragnheiðar Ingu og taka þátt í rannsóknum á þessu mikilvæga málefni. Þó að við séum svo heppin að búa við aðstæður þar sem andvana fæðingar eru orðnar mjög fáar og óvíða í heiminum færri, er hvert barn svo óendanlega mikilvægt og því er sorgin mikil þegar illa fer. Við verðum að reyna allt sem við getum til að skilja betur hvers vegna barn deyr og þá vonandi auka líkur á að ekki einungis á næstu meðgöngu fæðist lifandi barn heldur náum við að bjarga fleiri börnum. Nú tekur við stór rannsókn styrkt af Rannís þar sem leitað verður leiða til segja til um fylgjuþurrð áður en illa fer. Það að starfsfólk SAk taki þátt í rannsóknum er mikilvægt fyrir öflun þekkingar en einnig er líklegra að þjónusta SAk sé byggð á bestu þekkingu á hverjum tíma,” segir Alexander K. Smárason í samtali við heimasíðu Sjúkrahússins á Akureyri þar sem lesa má nánar um málið.
Hér má lesa greinina: Clinicopathological phenotypes of singleton stillbirth: A retrospective cohort study
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










