NTC

Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi á Akureyri um helginaLjósmynd: Kristófer Knutsen /Akureyri.is

Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi á Akureyri um helgina

Aldursflokkameistaramóts Íslands í sundi verður haldið í Sundlaug Akureyrar dagana 23. – 25. júní. Mótið er mikilvægasta fjáröflun Sundfélagsins Óðins. Á meðan mótinu stendur verður afgreiðslutími í sundlauginni skertur.

Í sundlauginni verður opið sem hér segir (og athugið að lokað er seinna en venjulega á föstudag og laugardag):

  • Föstudag 23. júní, 6:45 – 14:30 og kl.19:30 – 22:00
  • Laugardag 24. júní, kl. 19:30 – 22:00
  • Sunnudag 25. júní, kl. 18:00 – 20:00

Til að vega aðeins á móti styttingunni í Sundlaug Akureyrar verður opið lengur en venjulega í Glerárlaug:

  • Föstudag 23. júní, kl. 6:45 – 21:00
  • Laugardag 24. sunnudag 25. júní, kl. 9 – 18

VG

UMMÆLI

Sambíó