Alanna Lawley í Listasafninu á Akureyri

Þriðjudaginn 13. febrúar kl. 17-17.40 heldur myndlistarkonan Alanna Lawley Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Prescription architecture – S.A.D in Berlin, where do we go now?

Í fyrirlestrinum mun Lawley fjalla um verk sín, sköpunarferli þeirra og nálgun sína í listinni. Verk hennar fjalla um persónulega reynslu af þeim brotakenndu rýmum sem miðla upplifun af brottrekstri, tælingu og afneitun.

Alanna Lawley er fædd 1983 í Englandi en býr og starfar um þessar mundir í Berlín í Þýskalandi. Hún stundaði BA-nám við Chelsea College of Art and Design í London og hefur haldið fjölmargar sýningar, s.s. í Hollandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum og Englandi.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó