Akureyringar Íslandsmeistarar félagsliða og slógu Íslandsmet

Akureyringar Íslandsmeistarar félagsliða og slógu Íslandsmet

Íþróttafélagið Akur á Akureyri vann Íslandsmeistaratitilinn í berboga meistaraflokki félagsliða á ÍM innandyra 2025 í bogfimi um síðastliðna helgi í Reykjavík.

Meistaraflokks lið Akurs stóð saman af:

  • Valgeir Árnason
  • Helgi Már Hafþórsson
  • Izaar Arnar Þorsteinsson

Akureyringar voru efstir í undankeppni félagsliða á Íslandsmeistarmótinu og slógu Íslandsmetið í félagsliðakeppni með skorið 1469. En metið var áður 1404 stig og BF Boginn í Kópavogi sem átti metið. Kröftugir Akureyringar á uppleið.

BF Boginn í Kópavogi vann Íslandsmeistaratitil félagsliða 2024 og voru því í titilvörn. Akureyringar (Akur) mættu Kópavogsbúum (Boginn) í mjög jöfnum gull úrslitaleik Íslandsmeistaramótsins.

(2 stig fyrir að vinna lotu, 1 stig fyrir að jafna liðið sem er fyrr að ná 5 stigum vinnur leikinn, ef leikurinn endar í jafntefli 4-4 er bráðabani sem ræður úrslitum)

Akur tók fyrstu lotu úrslitaleiksins 47-33 og leiddu leikinn 2-0. Boginn tók aðra lotuna 49-48 og jöfnuðu leikinn 2-2. Akureyringar unnu svo þriðju lotuna 44-41 og staðan 4-2 Akureyringum í vil.

Síðasta lotan var mjög jöfn og útlit fyrir að leikurinn gæti endaði í jafntefli og þyrfti bráðabana til að ákvarða Íslandsmeistara félagsliða. En eftir að dómarinn hafði skoðað örvarnar var ljóst að Boginn og Akur jöfnuðu lotuna 45-45 og deildu stigum lotunnar og leikurinn endaði því í sigri Akureyringa 5-3.

Akureyringar tóku því Íslandsmeistaratitil félagsliða 2025 og fyrrum titilhafar og Íslandsmethafar BF Boginn í Kópavogi þurftu að sætta sig við annað sæti.

Árangur Akureyringa í einstaklingskeppni á ÍM í berboga meistaraflokki 2025:

Íslandsmet – Izaar Arnar Þorsteinsson – Berboga karla meistaraflokkur – 510 stig (metið var áður 508 stig)

Íslandsmeistari – Berbogi (óháð kyni) – Helgi Már Hafþórsson

Brons – Berbogi (óháð kyni) – Izaar Arnar Þorsteinsson

Silfur – Berbogi karla – Helgi Már Hafþórsson

Brons – Berbogi karla – Izaar Arnar Þorsteinsson

Silfur – Berboga kvenna – Heike Viktoría Kristínardóttir

Sambíó
Sambíó